Það hefur varla farið fram hjá neinum að Braggaparkið fór bókstaflega á kaf þegar sjórinn ákvað að kíkja í heimsókn með tilheyrandi tjóni sem hefur núna verið staðfest að fæst ekki bætt.
Ég er þó ekki af baki dottinn og stefni á að opna aftur með smávægilegum lagfæringum en kostnaðurinn er mikill og í raun ofviða fjárhag Braggaparksins. Þess vegna langar mig að athuga hvort það leynist einhverjir velgjörðarmenn þarna úti sem hafa áhuga á að styrkja uppbygginguna og stuðla að áframhaldandi innanhússaðstöðu fyrir hjólabretti, línuskauta, hlaupahjól og BMX-hjól á Akureyri.
Áhugasamir geta styrkt uppbygginguna hér eða haft samband við mig beint (847-8598). Ég minni einnig á að hér á heimasíðunni er hægt að kaupa flottar vörur sem hjálpar líka til við uppbygginguna. Margt smátt gerir eitt stórt.
Eiki Helgason
Styrktarreikningur
Eiki Helgason ehf.
Kt. 650609-0260
Rn. 0565-26-650609